Tveir heilsuferðapakkar fá hvatningarverðlaun

Iðnaðarráðherra, Katrín Júlíusdóttir, afhenti í dag fyrstu Hvatningarverðlaun í heilsuferðaþjónustu á Íslandi. Tveir áhugaverðir heilsuferðapakkar ætlaðir erlendum ferðamönnum fengu verðlaun að upphæð ein milljón króna hvor. Verðlaunahafarnir eru Hreyfistjórn ehf. í samvinnu við Breiðu bökin ehf., Fjallamenn ehf. og Icelandair Hótel Hamar fyrir verkefnið „Why not treat your backpain in spectacular surroundings“ og Bláa lónið í samvinnu við Icelandair, Kynnisferðir og Hreyfingu fyrir verkefnið „Blue Lagoon Psoriasis meðferð – ný intensive meðferð“.

Auglýst var eftir umsóknum fyrir verðlaunin og bárust 23 tillögur frá 20 aðilum. Til að koma til greina sem handhafi verðlaunanna þurftu verkefnin að uppfylla sjö skilyrði:

1. Þrír eða fleiri aðilar/fyrirtæki koma að heilsuferðinni.

2. Ferðin sé ætluð erlendum vel skilgreindum markhópum.

3. Heilsuferðirnar verði metna út frá nýnæmi og framtíðarmöguleikum þeirra.

4. Heilsuferðin sé amk. 3 sólarhringar og sé í boði utan háannatíma.

5. Heilsuferðin falli að skilgreiningu á vellíðunar- eða heilsuferðaþjónustu*

6. Tilgangur ferðarinnar sé að efla heilsu viðskiptavinar.

7. Ávinningur af ferðinni sé skilgreindur.

Um verðlaunaverkefni Hreyfistjórnar ehf. sagði dómnefnd meðal annars: „Í verkefninu er notuð þekkingaryfirfærsla og íslensk nýsköpun til að búa til áhugaverða og nýja afurð í ferðaþjónustu þar sem fólki er boðið upp á greiningu, meðferð og þjálfun við mjóbaksvandamálum. [...] Ferðin er þannig uppbyggð að gestirnir koma til með að gista á Hótel Hamri í þægilegu umhverfi þar sem greining, þjálfun og fræðsla fer fram undir handleiðslu  sér hæfðra starfsmanna Hreyfistjórnunar ehf. og Breiðu baka ehf. Þá býðst getum að nýta sér fjölbreytta afþreyingu sem í boði er á svæðinu og munu Fjallamenn ehf. sjá um að skipuleggja þann þátt feðarinnar.“

Um verðlaunaverkefni Bláa lónsins sagði dómnefnd meðal annars: „Það hefur sýnt sig í áranna rás að psoriasis meðferð í Bláa Lóninu skilar verulegum árangri og er enn í stöðugri þróun og byggir auk þess á rannsóknum og reynslu fjölda einstaklinga. Hin nýja „intensive-meðferð“ miðar að því að stytta hefðbundna psoriasis meðferð um helming, eða í 1-2 vikur, en ná þó sama árangri. Er þetta í samræmi við óskir gesta erlendis frá sem sótt hafa hefðbundna meðferð. Nálgun meðferðarinnar er heildstæð og felur m.a. í sér ráðgjöf um mataræði, hreyfingu og boð um kynnisferðir. Verkefnið er sett fram sem hágæðaferð þar sem viðskiptavinir upplifi margt af því besta sem heilsulandið Ísland hefur upp á að bjóða.“

Til hvatningarverðlaunanna er stofnað að frumkvæði iðnðarráðherra til að fylgja eftir stofnun samtaka um heilsu- og lífsstílstengda ferðaþjónustu.

Margar þjóðir hafa náð miklum árangri á þessu sviðið og fólk fer langan veg til að sækja sér slíka þjónustu og upplifanir. Áhuginn á heilbrigðum lífsstíl fer vaxandi og sífellt fleiri sameina áhuga sinn á heilsueflingu og ferðalögum. Erlendar rannsóknir benda þess til að ferðamönnum sem sameina þetta tvennt fjölgi um 18% á heimsvísu árlega og stór hluti þeirra er frá helstu markaðssvæðum Íslands.

Hér er því um að ræða mikilvægt sóknarfæri fyrir íslenska ferðaþjónustu, ekki síst utan háannar.

(download)

Fyrirlestrar ráðstefnunnar um orkunýtni í byggingum komnir á vef iðnaðarráðuneytis

Skjaldarmerki

Flestir þeir fyrirlestrar sem fluttir voru á ráðstefnu um orkunýtni í byggingum má nú finna á heimasíðu iðnaðarráðuneytis.
Sjá: http://www.idnadarraduneyti.is/frettir/frettatilkynningar/nr/3002

Natturaogferdatjonusta

Video með ávarpi iðnaðarráðherra um íslenska jarðvarmaklasa

Litmynd_katrin

Ávarp Katrínar Júlísudóttur var flutt á ráðstefnu á Íslandi á sama tíma og hún var á leið sinni frá Indlandi þar sem erindagjörðir voru einnig á sviði jarðvarma.

<iframe src="http://player.vimeo.com/video/16323785" width="400" height="225" frameborder="0"></iframe><p><a href="">Katrín Júlíusdóttir</a> from <a href="http://vimeo.com/mariannafridjons">Marianna Fridjonsdottir</a> on <a href="http://vimeo.com">Vimeo</a>.</p>

Átak til atvinnusköpunar á Suðurnesjum

Runeyti

Ríkisstjórnin hélt reglulegan fund sinn í morgun í Reykjanesbæ og er það í fyrsta sinn sem ríkisstjórn Íslands fundar á Suðurnesjum. Fyrir fundinn átti ríkisstjórnin fund með bæjar- og sveitarstjórum allra sveitarfélagana á Suðurnesjum þar sem farið var yfir stöðu mála á svæðinu, ekki síst atvinnumálin og lausnir á því mikla atvinnuleysi sem þar ríkir.

Iðnaðarráðherra, Katrín Júlíusdóttir, lagði fram minnisblað um tvær aðgerðir sem iðnaðarráðuneytið er að ráðast í sem hluta af fyrstu skrefum í samræmdum aðgerðum stjórnvalda til að efla atvinnu á Suðurnesjum. Þessar aðgerðir eru hluti af fjölda verkefna iðnaðarráðuneytisins og stofnana þess sem tengjast beint eða óbeint örvun atvinnulífs á Suðurnesjum. Iðnaðarráðherra fór yfir lista yfir fjölmörg önnur verkefni en þau fara til frekari vinnslu hjá nýskipuðum starfshópi um atvinnumál á Suðurnesjum og stofnunum ráðuneytisins.

Starfshópur um atvinnumál á Suðurnesjum.
Iðnaðarráðherra hefur skipað hóp þriggja sérfræðinga, sem fengið hefur það verkefni að greina stöðu atvinnulífsins á Suðurnesjum, meta sérstöðu þess og sóknarmöguleika, fara yfir hugmyndir um atvinnuuppbyggingu, meta nýjar hugmyndir og gera tillögur um aðgerðir. Unnið verður í nánu samstarfi við heimamenn og hagsmunaaðila á borð við talsmenn verkalýðsfélaga og atvinnurekenda, þingmenn kjördæmisins, atvinnumálanefndir sveitarfélaga og Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum. Stofnanir iðnaðarráðuneytisins Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Ferðamálastofa og Byggðastofnun svo og fjárfestingasvið Íslandsstofu munu vinna með starfshópnum. Þá verður verklag og áherslur samræmt við starfsemi vaxtarsamnings iðnaðarráðuneytis og Sambands Sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Starfshópinn skipa Ásta Dís Óladóttir framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar, Guðmundur Pétursson frá Samtökum Atvinnurekenda á Suðurnesjum og Eiríkur Hilmarsson, framkvæmdastjóri. Starfshópurinn mun skila iðnaðarráðherra framvinduskýrslu fyrir 15. desember 2010 og lokaskýrslu með tillögum um aðgerðir í atvinnumálum á Suðurnesjum fyrir 1. mars 2011. Starfshópurinn hefur tekið til starfa og fundað með forstöðumönnum stofnana ráðuneytisins þar sem farið var yfir verkefni á þeirra vegum sem tengjast Suðurnesjum.

Klasasamstarf fyrirtækja á sviði líforku.
Unnið verði með fyrirtækjum á Suðurnesjum að mótun og rekstri klasa á sviði líforku.  Metið verður hverskonar ný fyrirtæki á sviði líforku æskilegast sé að laða inn á svæðið til að styrkja fyrirtækin sem þar eru nú og þá framtíðarsýn sem þar verður sköpuð um uppbyggingu og framtíðar samstarf.  Margir erlendir fjárfestar á sviði líforku hafa sýnt svæðinu áhuga og verða verkefni þeirra skoðuð fyrst.  Markmið verkefnisins er að styrkja samkeppnishæfni fyrirtækja á Suðurnesjum sem starfa á sviði líforku og nýrra fyrirtækja sem þangað vilja koma til að nýta sér sérstöðu svæðisins og kosti klasasamstarfs.  Beitt verður aðferðafræði klasa til að vinna að verkefnum á sviði nýsköpunar, vöruþróunar, markaðssóknar og útflutnings.  Stefnt er að því að verkefni klasans muni leiða til aukinnar arðsemi fyrirtækja í gegnum nýsköpun og þekkingaryfirfærslu. Þess er einnig vænst að samstarfið stuðli að aukinni hagnýtingu sérfræðiþekkingar og nýrra tækifæra í samstarfi fyrirtækja.         Áherslur verkefnisins verða á eftirfarandi þætti:
·        Framkvæmd sameiginlegra þróunarverkefna
·        Þróun á nýrri vöru eða þjónustu
·        Markaðsaðgerðir
·        Stuðning við útflutning og sókn á nýja markaði
·        Þróun á viðskiptamódeli klasa
·        Greiningarvinnu og fýsileikakannanir
·        Tækni- og þekkingaryfirfærslu
Fjárfestingasvið Íslandsstofu og aðrir vinna þegar að áhugaverðum verkefnum á sviði líforku á Suðurnesjum og er undirbúningur þeirra komin mislangt. Staðsetning fyrirtækja nærri jarðgufuvirkjunum á Suðurnesjum hentar mjög vel enda munu þau nýta ýmsar aðrar afurðir virkjana en raforku.

Önnur mál
Á ríkisstjórnarfundinum voru samþykkt ýmis önnur sem haft geta góð áhrif á stöðu mála á Suðurnesjum og jafnframt var samþykkt sú tillaga fulltrúa sveitarfélaganna að setja á stofn samráðsvettvang ríkisstjórnarinnar og sveitarfélaga á Suðurnesjum til að vinna að framgangi málanna og fjölmargra annarra sem hafa verið til skoðunar að undanförnu. Ríkisstjórnin hefur leitað eftir hugmyndum að aðgerðum frá öllum ráðuneytum ásamt því sem farið hefur verið yfir þær hugmyndir sem komu út úr vinnu að Sóknaráætlun 20/20 fyrir Suðurnes.

Á vef forsætisráðuneytis er listi yfir þau verkefni sem samþykkt voru á ríkisstjórnarfundinum í Reykjanesbæ: http://www.forsaetisraduneyti.is/frettir/nr/4465

Iðnaðarráðherra í pallborðsumræðum á málþingi um Ísland

Click here to download:
show_Germany_Frankfurt.pdf (251 KB)
(download)

25. október sl. var efnt til málþings í Frankfurt um Ísland, á
vegum "Rhein Main Media", sem gefur út öll stóru dagblöðin á svæðinu.

Þessi viðburður er haldinn tvisvar á ári og hafa fengið marga góða gesti í heimsókn í gegnum tíðina (Gorbatschov, Schröder o.fl.).

Í þetta skiptið fjallaði pallborðið um Ísland, hvernig landið mun ná sér út úr kreppunni, hversu mikilvæg ferðaþjónustan er fyrir þjóðina, og síðast en ekki síst var fjallað um hlutverk Íslands á bókastefnunni 2011.

Þetta var mjög glæsileg landkynning fyrir Ísland sem vel var staðið að.

Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, fékk mikla umfjöllun eftir málþingið í fjölmiðlum sem þótti heppnast afar vel.

Hér má sjá grein sem birtist í Frankfurter Neue Presse, en það blað kemur út í um 180 000 eintökum.


Ráðstefna um orkunýtni í byggingum

Iðnaðarráðuneytið stendur fyrir ráðstefnu um orkunýtni í byggingum í samstarfi við Orkustofnun, Orkusetur, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Neytendastofu og Samtök iðnaðarins.
Staður:
Orkugarður, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík
Stund:
11. nóvember 2010, kl. 13:00-16:00
Fundarstjóri: Helga Barðadóttir,
sérfræðingur í iðnaðarráðuneyti

13:00-13:10        Ávarp iðnaðarráðherra Katrínar Júlíusdóttur
13:10-13:30        Orkusparnaður á Íslandi: Einar Helgason, Almenna verkfræðistofan.
13:30-13:50        Landsvarmi - möguleikar varmadæla: Kristján M Ólafsson, ráðgjafi.
                              Nýsköpunarmiðstöðvar Ísl.

13:50-14:10        Orkusparnaður í byggingum: Andrés Þórarinsson, framkv.stj.
                              Verkfræðistofunnar Vista

14:10-14:30        Upplýsingaskylda um orkunotkun heimilistækja:  Tryggvi Axelsson,
                              forstj. Neytendastofu

14:30-15:00        Kaffi
15:00-15:55        Hvað þarf til að ná fram meiri orkunýtni:
Lausnir og reynslusögur fyrirtækja sem náð hafa árangri 
Drekafluga: Þórdís Rós Harðardóttir: Hlutverk dagsbirtu í lýsingu innanhúss.
ICEconsult: Ragnar Gunnarsson: Orkustýring bygginga.
Samverk: Ragnar Pálsson framkv.stjr.: Gler og orkunýtni.
Osram: Arnar Þór Hafþórsson: Sparperur – góður kostur?
Verkís: Guðjón Ólafsson: Orkunýting í húsnæði Háskólans í Reykjavík
15:55-16:00        Ráðstefnulok – samantekt fundarstjóra
Allir áhugasamir eru velkomnir og er þátttaka án endurgjalds en nauðsynlegt er að skrá þátttöku.
Skráning: http://www.orkustofnun.is/radstefna-um-orkusparnad
eða hjá Guðrúnu Bjarnadóttur á Orkustofnun, í síma 569-6002.

Póstkort skólabarna um framtíðina

Idnadarradherra-og-forseti-alt

63 nemendur í 3. bekk Hörðuvallaskóla mættu á Alþingi í dag 8. nóvember og afhentu Katrínu Júlíusdóttur, iðnaðarráðherra og Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis póstkort til allra alþingismanna í tilefni af Athafnavikunni. Hver þingmaður fékk póstkort frá einum nemanda þar sem sendandi lýsir því hvað hann óskar sér að verða þegar skólagöngu lýkur. Þetta eru sterk skilaboð um framtíðarsýn íslenskra barna. Fulltrúi nemenda flutti ávarp og svo afhenti hver nemandi sitt kort.


About

Alþingismaður frá árinu 2003, iðnaðarráðherra frá 2009 og jafnaðarmaður alla ævi.

Iðnaðarráðuneytið

Iðnaðarráðuneytið á flickr

Katrín á Twitter

Sendu Katrínu póst

TwitterFacebookFlickrFlickr